Karen Lind

Færslur: 2012 Febrúar

29.02.2012 23:17

Skoðanakönnun

Endilega takið þátt í skoðanakönnuninni hér hægra megin á síðunni.

Það er hægt að velja FLEIRI en einn möguleika :-)



...



29.02.2012 22:54

Statigram.com

Sá þetta hjá einni ókunnugri á Instagram í morgun..



Dagurinn sem ég fékk Iphone. No turning back!



Takk fyrir öll <3 Það er svo gaman að fá þessi hjörtu.



Þetta meikar sens.



Snarofvirk inn á þessu.



Ég veit ekki hver þessi mrs_nmhc er.. en hún like-ar næstum því hverja einustu mynd hjá mér. Þekkir hana einhver Instagrammari?



Frekar aftarlega á merinni á heimvísu.



Sigga Hulda mín :-)

-K-

29.02.2012 21:25

Hlaupár

Til hamingju þeir sem eiga afmæli í dag..



Sérstaklega til þeirra sem skoða bloggið mitt..

-K-

29.02.2012 19:57

Lipstick, Coral

X O X O





Gef'mér þennan efri í sumargjöf!

-K-

28.02.2012 21:36

Ný hálsmen.

Ég fékk þessi fjögur í dag til Íslands frá sólinni í Florida...



Þau eru ofsalega sæt :-)

-K-

27.02.2012 22:22

Árshátíð @ Hótel Borg

Ég fór á árshátíð um helgina á Hótel Borg.

Úbbs, ég var lítið sem ekkert fín... Það var bara svo kalt úti!





Ég náði að fela frunsuna ansi vel með blóðrauðum varalit..



Þetta var mjög gott - en ég get eiginlega ekki svona rautt kjöt.



Eftirréttur - Creme Brulée. Forrétturinn fór í enga myndatöku.

Hvað er betra en að geta keyrt heim til sín eftir langa andvökunótt? Ekkert.

Í þennan klukkutíma eða tvo sem við vorum inn á ákveðnum skemmtistað ofbauð eitt ákveðið atriði augunum mínum.

Maður + kona + puttar + undir pilsi + dansgólf = þið plúsið þetta bara saman og fáið eitthvað skrautlegt út.

Guð blessi Ísland.

-K-

27.02.2012 22:06

Salat með kjúklingabaunum.

Ég prófaði í fyrsta sinn að borða salat með kjúklingabaunum í dag.

Ofsalega einfalt en engu að síður gott og hollt.



Spínat
Klettasalat
Blandað kál
Rauðlaukur
Papríka
80 gr. kjúklingabaunir (hitaði þær bara inn í örbylgjuofni).
Balsamik sýróp
Fetaostur

Kjúklingabaunir eru mjög hollar og próteinríkar.

-K-

26.02.2012 22:12

Burberry rubber boots.. and tiger boots baby!

Ótrúlega flott og tímalaus.






Ef ég ætti að kaupa mér svona dýra skó/flík yrði hún að vera tímalaus..

.. annars fengi ég hjartatruflanir.

Fást hér.



Síðast þegar ég keypti mér stígvél, voru þau alls ekki tímalaus. Já, það eru einmitt þessi tígrisdýrastígvél. Ég neyddist til að velja stígvél úr þessu hörmulega stígvélasafni í ónefndri búð í NYC. Það var búið að spá svo mikilli rigningu að ég var nánast orðin hrædd. Við vinkonurnar rukum út í næstu búð og þar var splæst í þessi vaðstígvél.

Aldrei kom rigningin.

Ótrúlega var pirrandi að pakka þessum plássfreku tígrisdýrum niður í tösku!



Fleiri skópör keypt í sömu ferð.



Það er svo auðvelt að sakna gömlu daganna..

MIG VANTAR STELPUFERÐ...

... og vaðstígvél, hóhó!

-Karen-

26.02.2012 20:11

88ULTRA SHIMMER Palette

88ULTRA SHIMMER Palette





Ég fékk þetta æðislega augnskuggasett í jólagjöf.




Þessi unga snót notar þetta oft. Ég ætti að fara fylgja henni í þessu, því ég er ein af þeim sem kann ekkert að mála mig.

-K-

24.02.2012 20:45

Food

Random matarmyndir frá síðastliðnum dögum.



1. Saffran - humarsalat.
2. Hnetur - saxaðar niður og notað á salat.
3. Kjúklingabaunir frá Sollu.
3. Spínat, rúkóla og blandað salat með hnetum og fleira.

-Karen-

24.02.2012 10:27

Heilsusamlegt?

Nú fara hinar árlegu Fitness keppnir að ganga í garð.

Sjálf hef ég skorið einu sinni svona niður í rúmar 12 vikur. Tvö orð yfir það, aldrei aftur.



Mig langar til að deila með ykkur smá textabroti úr Abnormal Psychology (klínísk sálfræði) bókinni minni. Bókin er notuð til kennslu í sálfræðinni í HÍ og einungis er vitnað í rannsóknir og ritrýndar greinar. Textinn útskýrir einnig nokkuð vel ástæðuna fyrir því af hverju þessi "íþrótt" vekur ekki nokkra aðdáun hjá mér.


"Bodybuilding is an increasingly popular sport, but bodybuilders routinely have substantial weight fluctuations as they try to shape their bodies for competition and then binge (ofát) in the off-seasons. For example, one study compared male bodybuilders with men with diagnosed eating disorders. This study found that the bodybuilders had a pattern of eating and exercising as obsessive as that of the men with eating disorders, but with a focus on gaining muscle, rather than losing fat (Mangweth et al., 2001). In another study of male bodybuilders, 46 percent reported bingeing after most competitions, and 85 percent reported gaining significant weight (an average of 15 pounds) in the off-season.  Then, they dieted to prepare for competition, losing an average of 14 pounds (Anderson et al., 1995). In a parallel study of female bodybuilders and weight lifters, 42 percent reported having been anorexic at sometime in their lives, 67 percent were terrified of being fat, and 58 percent were obsessed with food (Anderson et al., 1995). A study of female weightlifters found that they often abused ephedrine, a stimulant that helps reduce body fat, particularly if they had symptoms of an eating disorder (Gruber & Pope, 1998)".


Ég ætla ekkert að málalengja þetta neitt frekar, en er ekki bara betra að hugsa vel um líkamann sinn, hreyfa sig reglulega, borða heilsusamlegan mat og vera þá kannski með nokkur aukakíló utan á sér?

Próteinduft, próteinsúkkulaði, Herbalife í allar áttir og töflur fyrir allan fj**dann? Ekki góð þróun.

-Karen Lind-


23.02.2012 20:17

Kvöldmatur.

23.02.12



Kjúklingur.
Soðnar kartöflur.
Ein tsk. af grænu pestói.
Steiktir sveppir og hvítlaukur á pönnu með hvítlaukskryddi.
Rúkóla með fetaosti & balsamik sýrópi.

Ég er svo einföld!

23.02.2012 15:26

http://followgram.me/kaarenlind


Það er eflaust ágætlega pirrandi að vera ekki með Instagram og geta ekki skoðað allar myndirnar hjá fólkinu sem er t.d að pósta á facebook.

Well - hér er lausnin við því vandamáli. Þeir sem eru með Instagram skrá sig inn á Followgram.me og þá geta allir fylgst með.



Einnig er hægt að skoða kommentin við hverja mynd sem og þá sem hafa sett "hjarta" við myndina.

Hér er mitt instagram.

-Karen-

23.02.2012 15:09

Stuð

Það er gaman að vera á leið á árshátíð um helgina..

... og fá einn skemmtilegan glaðning á fimmtudegi, FRUNSU!



Ohhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhhh.

Mér finnst ég svo ofsalega sóðaleg með frunsu. Það er bara ekki fræðilegur möguleiki að mér finnist ég sæt og fín á árshátíðinni með eina slíka.

-K-

23.02.2012 00:04

Hringlótt sólgleraugu, Ebay.

Ætti maður að þora að kaupa aftur hringlótt sólgleraugu á Ebay?

... það endaði frekar illa síðast. Þyrfti helst að sýna mynd af því gríni.

 



Mér finnst þessi frekar flott og nokkuð lík þessum sem Olsen systurnar hanna (sem ég bloggaði um fyrir 1-2 vikum síðan).

Fást hér.

Það er á hreinu að ég fer ekki í gegnum sumarið 2012 án hringlóttra sólgleraugna.

-K-

Flettingar í dag: 1959
Gestir í dag: 730
Flettingar í gær: 2323
Gestir í gær: 936
Samtals flettingar: 3282508
Samtals gestir: 984229
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 23:48:23
eXTReMe Tracker