|
Karen Lind |
|
16.02.2012 17:34Kanilsnúðar... mmm ... Systir mín var að baka þessa góðu kanilsnúða.. .. hráefnið er að mestu leyti lífrænt. ![]() ![]() Eigið góðan dag.. Minn var frekar rólegur. Ég vaknaði um hádegisbil.. pæliði í því? og að segja frá því.. slæmt. Fór í ræktina, lyfti þríhöfðann og bak.. og verslaði mér eitt stykki æfingabol frá ADIDAS á útsölu fyrir aðeins 4300 krónur.. ... Nú liggur leiðin að eldavélinni. 8 K Skrifað af Frigid 16.02.2012 13:58Skráargatið, hollustumerki.LOKSINS. "Skráargatið hefur verið notað, sem matvælamerki í Svíþjóð í 20 ár og er vel þekkt af sænskum neytendum. Með því að ákveða viðmið fyrir ákveðnar fæðutegundir hefur skráargatið orðið merki fyrir matvæli sem innihalda minni fitu, salt og sykur og meira af heilu korni og trefjum. Matvælaframleiðendum er frjálst að nota skráargatið, en vörur sem merktar eru með skráargatinu verða að uppfylla ákveðin næringarviðmið, sem gilda fyrir hvern flokk matvæla." Tekið af mbl.is. Fyrir þær sem ekki vita þá var samþykkt á Alþingi í morgun, að taka upp Norræna hollustumerkið hér á landi. Nú verður allt svo miklu einfaldara fyrir þá sem langar að velja hollari vöru en eru jafnvel ekki með næga þekkingu til að greina á milli... réttara sagt bara einfaldara fyrir alla, hvort sem þú hefur þekkinguna eða ekki. Frábært! -K- Skrifað af Frigid 16.02.2012 13:46Grenade, Studio.Ég á bágt með mig þegar ég hlusta á þetta lag..
Bakraddirnar eru æðislegar.. ... og ekki skemmir fyrir að þetta lag minnir mig alltaf á besta vin minn. -K- Skrifað af Frigid 15.02.2012 20:42Golden beltOfsalega er ég eitthvað hrifin af gullinu þessa dagana. Þetta belti getur gert margt fyrir einföld dress. Ég held að ég verði að kaupa mér það fyrir sumarið.. Fæst hér. -K- Skrifað af Frigid 14.02.2012 19:24ValentínusardagurÉg viðurkenni hér með.. ... að ég sé engin Valentínusartýpa. Og blóm? Ekki fyrir mig... þau deyja eftir nokkra daga og kosta alltof mikinn pening miðað við líftíma. Ég afþakkaði samt aldrei e-ð fallegt í innbúið. En þið sem haldið hann hátíðlegan, gleðilegan Valentínusardag :) Skrifað af Frigid 13.02.2012 21:44Ég elska Instagram! ... svo mikið að FB - fíknin fór í dvala.. svona nánast. Amen to that. Hér eru nokkrar sem ég hef tekið síðastliðna mánuði. Paradise Pink, Milani. Smiling omelette with blackheads. PrófaLind í stríði við bólurnar. Jóhanna Sigurðardóttir var flugfreyja hjá Flugleiðum í gamla daga. Ég klæðist friðarsokkum af og til... Flækjur. Hárið á mér flækist svakalega þegar það er slegið. FML. Hinn örlagaríki dagur lampans. Dagurinn sem ég þreif Kartell skerminn með uppþvottabursta og rispaði hann í tætlur. True story. Lífrænt epli. Ballerínusnúður, hvítt púður, þykkur eyeliner, klesst augnhár og fjólurauður varalitur. IT band syndrome. Hafið þið rúllað IT bandið á ykkur? KILL ME á vel við. Af hverju er ekki til síða sem heitir www.bjornhlynur.is? Tímalausir. Karen Tiger Beib. Djók. Stundum borða ég morgunmatinn á ferðinni.. Bad habit! Grunnskólaball. Nóg af stuttum pilsum. Góðir vinir. Veikindadagur # 5. -K- Skrifað af Frigid 13.02.2012 14:35Crest, 3D whiteThis gives me the creeps! Hvenær klárast þessar elskur? Ég er búin að treina þetta óþolandi dót svo lengi.. Keypti þetta í nóvember og er ekki einu sinni hálfnuð með "gómana". -K- Skrifað af Frigid 13.02.2012 05:05... gull ... og meira gull.... Þetta er MUST HAVE fyrir sumarið. Voff. Mjá. Voff, voff. Hvað segið þið dömur, IN or OUT? -K- Skrifað af Frigid 13.02.2012 04:04Rihanna - Grammy awards 2012Uppáhalds. Litla kindin mín, sem hefur grennst svolítið undanfarið. How do you like the hair? -K- Skrifað af Frigid 12.02.2012 01:12Whitney HoustonHvíldu í friði Whitney Houston. ![]() ![]() Öll þessi gömlu lög eru frábær.. eiginlega ólýsanlega góð. -How will I know. -I wanna dance with somebody. -Saving all my love for you. -I have nothing. ![]() En hvað þetta er sorglegt.. .. ég á eina svo sterka minningu frá því ég var átta ára gömul. Þá bjó ég úti í Bandaríkjunum. Ég var í bíl á hraðbraut einhvers staðar í New York... Við fjölskyldan vorum á leið heim frá JFK flugvellinum, en við fórum þangað til að skutla systur minni í flug til Íslands. Hún hafði ákveðið að flytja til heim, en á þessum tímapunkti hafði hún búið í ár með okkur í Bandaríkjunum. Ég sat í aftursætinu og horfði út um gluggann og það láku tár við að hlusta á lagið "I will always love you" með Whitney. Ég trúði ekki að systir mín væri farin og ég ein eftir í stóru Ameríku. Hvíldu í friði kæra Whitney. -K- Skrifað af Frigid 11.02.2012 12:49Orð.Sum orð eiga ekki að vera notuð. Hér eru mín "uppáhaldsleiðinlegustu orð". Lol.
-skvís. -hittingur. -knús. -beib. -sæta. -hehe. (reyndar ekki orð, en...). Hver eru ykkar uppáhaldsleiðinlegustu orð? -Karen- Skrifað af Frigid 11.02.2012 00:46Blue IvyLoksins fáum við að sjá Blue Ivy. Það er alveg greinilegt að Beyoncé eigi hana. Jesú minn, sú er krúttleg og friðsæl. Hæ litla krútt. Ég er með augabrúnirnar hennar mömmu.. og líka nefið hennar. Beyoncé mamma. Þetta bræðir mig. Krúttlegur stoltur pabbi. Ofsalega er gaman að sjá þessa dúllu. Það er eitthvað ofsalega merkilegt við það að eiga mömmu sem heitir Beyoncé og pabba sem heitir Jay - Z. Love this. Hverjum finnst ykkur hún lík? -Karen- Skrifað af Frigid 10.02.2012 06:24JC shoesI'm no lover of Jeffrey Campbell shoes.. En.............! BLEIKIR? Yeahbba. Ég er svo bleik... þó ég eigi ekkert bleikt. Mótsögn í því.. Já.. -K- Skrifað af Frigid 10.02.2012 06:19HálsrígsafmæliÍ dag held ég daginn hátíðlegan.. .. Nú, auðvitað á ég tveggja mánaða hálsrígsafmæli. Ætli maður skelli ekki í þriggja hæða köku.. ? Skrifað af Frigid |
Eldra efni
|