|
HALLDÓRA Við erum eins og dýr búð. Ekki skoða okkur ef þú hefur ekki efni á því. |
|
28.01.2012 00:10More green stuffÉg fékk mér annan í dag.. Hann var miklu betri. Yggdrasill safi - ananas og mangó. Spínat.. Loads of it. Kókosvatn. Mangóbitar. CC Flax og Engiferduft. 1 tsk. lífrænt hnetusmjör. 1/2 kreist lime. Kókosflögur. Pæliði samt í því hvað þetta er hollt fyrir líkamann! -K- Skrifað af Frigid 26.01.2012 19:55Monitor vs. VinatorMér hefur fundist sérstaklega áhugavert að fylgjast með Monitor og þeim einstaklingum sem bregða fyrir í blaðinu. Þetta er ágætis blað og ég hef ekkert út á það að setja. En stundum finnst mér meira eins og ég sé að skoða Viljann frá árinu 2003, en það er skólablað í Verzlunarskóla Íslands. ![]() Það er engin neikvæðni í gangi frá mínum bæjardyrum séð, en ætli aðrir taki eftir þessu sem voru ekki í Versló eða þekkja ekki til þessa fólks? ![]() Hver er þín upplifun? Skrifað af Frigid 26.01.2012 15:31In desperate needÉg er að tryllast. Það er enginn sem ég þekki á leið til USA, og mér líður pínulítið eins og ég sé með innilokunarkennd. Það er bara of ljúft að geta pantað sér eitthvað ódýrt stelpudót á netinu af og til, sem varla hreyfir við buddunni.. Hæ, sæta. Alveg er þetta flottur litur.. Smart. Fringe lokkar.. gull/svart er osom. Ég lít nú bara upp til stelpna sem versla sér föt á Íslandi. Ég ætti svona ca. eina peysu, tvær buxur og kannski varalit. Verðlagningin er skelfileg... alveg hreint út sagt skelfileg. -Karen- Skrifað af Frigid 26.01.2012 15:23Smá mixÉg hef ekki borðað boost í næstum ár. Ég blæææs út af því! Mjólkurvörur fara hræðilega í mig, sérstaklega skyr. Í dag prófaði ég loksins að gera smá mix án mjólkurvara. Kókosvatn Ananas og mangósafi, Yggdrasill Hálft lime, kreist. 150 gr. af spínati 1 tsk. engiferduft 1 tsk. CC flax 1 msk. hafrar Frosið mangó Frosin jarðaber. Þetta smakkaðist vel og er mjög létt í maga sbr. boost. -K- Skrifað af Frigid 24.01.2012 22:38Halldór Helgason snjóbrettagaur.Halló.. Kjósum Halldór Helgason snjóbrettameistari með meiru. Úrslit eru kynnt á morgun, gefum okkur eina sekúndu til að haka í nafnið hans þar sem það er mjög mjótt á mununum. Hér ![]() Þori að veðja á að þeir bræðurnir verða í Ísþjóðinni hjá Ragnhildi Steinunni á næstunni. -K- Skrifað af Frigid 23.01.2012 19:02Kvöldmatur & engiferkryddHALLÓ HAFNARFJÖRÐUR. Kvöldmaturinn: Kjúklingur, steiktur upp úr 5 gr. af olíu. Hýðishrísgrjón. Grænmeti: Laukur, rauð- og hvítlaukur, pekanhnetur, spínat. Út í grænmetið setti ég 2 tsk. af engiferdufti (þurrkað og malað engifer frá Jurtaapótekinu) og 1 tsk. af sojasósu. Allt steikt upp úr 5 gr. af olíu. Jurtaapótekið er fyrir ofan Kofa Tómasar frænda. Ég er að seg'ykkur það... Kaupið svona engiferduft. Það er ekkert grín hvað þetta bragðbætir matinn! Svo eru engin bætiefni í þessu, bara pjúra engifer. -K- Skrifað af Frigid 23.01.2012 14:42Inspiration for the weekÞessar myndir eru nokkuð góðar. Verum heilbrigðar! :O) Allavega sex daga vikunnar, það má klúðra laugardögunum að einhverju leyti ;-) -K- Skrifað af Frigid 22.01.2012 19:56Food festival!Jeminn eini. Er bara í lagi að borða 10 þúsund kaloríur á einum degi? Ég lést næstum við matarborðið á laugardag.. Enda er ég að gjalda þess núna, ungfrú Blöðruselur er mætt á svæðið (í framan). @Vegamót, hádegismatur. Þetta er svo of gott, Louisiana kjúklingur. Í millitíðinni var farið á Nei, ráðherra! í Borgarleikhúsinu. Ég skelli bara einu LOL-i á þetta leikrit. Þar á eftir var það Grillmarkaðurinn. Skötuselsspjót. Nautalund. Í eftirrétt fengum við þessa hendi. Gamla seig smeygði henni undir skilvegginn og sveiflaði henni fram og tilbaka, rétt eins og hún væri kórstjóri. -K- Skrifað af Frigid 22.01.2012 19:49SurpriseMaður systur minnar hélt krúttlegt surprise afmæli fyrir systur mína sl. föstudag. -K- Skrifað af Frigid 22.01.2012 19:37Polaroid magnetsFyrir þær sem fannst polaroid seglarnir mínir sætir! Þeir eru til í Tiger í Kringlunni, þrjú stykkir á 500 krónur. Meira að segja ódýrara en mitt frá USA, þar fékk ég sex stykki á 15$. Hurry up ef ykkur langar í! -K- Skrifað af Frigid 22.01.2012 19:28Eins.... Pinocchio Hay teppið.. Og þessar glasamottur sem ég fann inn á einhverri síðu. Svei mér þá, það apa allir eftir öllum. -K- Skrifað af Frigid 19.01.2012 14:18Grænmetismiklir heilsuréttir, 120/300.Sælar. Hafið þið smakkað heilsurétti Nings, þá þessa sem eru með 300 gr. af grænmeti og 120 gr. af kjúklingi? Þeir eru með þrjá svona rétti (300/120), en þeir eru sérstaklega búnir til fyrir fólk sem er í prógrami hjá dönsku vigtarráðgjöfunum (btw þá eru dönsku vigtarráðgjafarnir frábærir fyrir fólk sem er í þyngri kantinum og langar til að létta sig). Ég fékk mér rétt númer 301, í honum er kjúklingur, blómkál, brokkolí, gulrætur, bambus og blaðlaukur. Svo er kryddað með hvítlauk, engifer, chilli og léttri soya. Ég keypti þetta oft hér áður fyrr & brá því heldur betur þegar ég sá verðið, það hefur hækkað mikið og er nú 1890 krónur. Frábær kvöld/hádegismatur sem er næringarlega rétt samsettur. -K- Skrifað af Frigid 17.01.2012 21:15MatardagbókÉg er búin að pæla frekar mikið í mataræðinu undanfarið. Ég er að reyna að sniðganga sykur eins mikið og ég get. Það eru nokkrar ástæður fyrir því, m.a. að húðin á mér þolir hrikalega illa sykur, ég fæ öndunarerfiðleika vegna mataróþolsins en þeir aukast svakalega með sykurneyslu, sveppir í líkamanum nærast á sykri, andleg líðan verður töluvert verri og ég verð hrikalega orkulaus. Ég ætla að deila með ykkur tveimur dögum sem eru næstum sykurlausir. En hafið í huga að ég ekki lærð, þetta er ekki heilagt og eflaust margt rangt við þetta. En mér finnst þetta frábært og líður vel af þessu :O) Mánudagur, 16. janúar 8.00 - rapunzel hafragrautur, fimm perlur af D-vítamíni og ½ L af vatni. 10.00 - grænt epli með lífrænu hnetusmjöri og ½ L af vatni. 12.00 - spinning. 13.00 - próteinsjeik blandaður í undanrennu, soðið egg og ½ L af vatni. 15.00 - tvö maiskex frá Sollu með kotasælu og ½ L af vatni. 16.00 - hámark. Tók eina teskeið af CC flax og kyngdi henni með vatni (mæli ekki m. því). 19.00 - 8 sushibitar. ½ L vatn. 21.45 - rúsínur & kókosflögur, aðeins minna en ein lúka. Þriðjudagur, 17. janúar. 8.00 - lífrænt skyr frá Bíóbú, með mangóbragði og einni kúfullri tsk. af CC flax út í og ½ L vatn. 9.30 - lúka af brasilíu- og kasjúhnetum og ½ L vatn. 11.00 - lífræn stöng með döðlum og einhverju fleira í, ½ L af vatni. 12.30 - kókossúpa á Núðluskálinni. 16.00 - hámark. 18.00 - ½ grænt epli með hnetusmjöri. 18.30 - Tae Bo 40 mínútur og lyftingaræfing (dó næstum því úr þreytu og fékk mér Trópí til að lifa æfinguna af). Nóg af vatni. 20.30 - ein lítil fajitas með hakki, káli, sýrðum rjóma (5%), osti (11%) og salsa sósu. @ Núðluskálin. -K- Skrifað af Frigid 17.01.2012 09:51Nike, æfingabuxur og íþróttaskór.W A N T E D Vinkona mín á svona buxur, og þær eru alveg frábærar. Ótrúlega gott efni í þeim, þá í þeirri merkingu að appelsínuhúðin sést ekki í gegn! :-) Fást hér Það eru allir í svona skóm. Mig langar ekkert í þá út af þeirri ástæðu, heldur aðallega vegna þess að þeir eru svo léttir og eflaust mjög þægilegir í lyftingar og líkamsæfingar. Fást hér -K- Skrifað af Frigid 16.01.2012 20:37LífræntÉg strengdi nú ekki mörg áramótaheiti. Bara þessi týpísku samt, missa 18 kg og ferðast endalaust. Djók. En svona í alvöru, þá var eitt þeirra að borða meira af lífrænum mat. ![]() ![]() Sumar rannsóknar benda til að lífrænn matur sé ekkert öðruvísi en venjulegur matur, og að þetta sé bara allt saman eitthvað crap and bologne. Kannski, en ef ég nota bara smá "common sense" þá gengur dæmið ekki upp. Hreint vatn eða vatn með skordýraeitri í? Hmm, leyfðu mér aðeins að hugsa. Auðvitað vatn með skordýraeitri. Ég er samt engin öfgamanneskja í þessu. Ég borða mest megnis ólífrænan mat en mér finnst bara bráðnauðsynlegt að vera meðvitaður um þessi bragðbætandi efni, litarefni, lystaukandi efni, rotvarnarefni og margt fleira sem er sett í matinn okkar. Framleiðendur gera allt til að bæta vöruna sína svo við kaupum meira af henni. Þeim er svo nákvæmlega sama um okkur, en þeim er ekki sama um hagnað fyrirtækisins. Hvað selur? Þetta er svona einföld skoðun mín á þessu öllu saman! ;-) -Karen- Skrifað af Frigid |
Vafraðu umEldra efni
Uppáhalds tónlist: Tenglar |